Fjallahjólaferð um Eldhraun og Lakasvæðið
- Lýsing
Fjögurra daga krefjandi fjallahjólaferð um eitt magnaðasta eldfjallasvæði landsins. Hjólað er um Eldhraun, Lakasvæðið og austanvert Fjallabak þar sem víðáttumikil hraun, eldgígar og stórbrotið landslag einkenna leiðina.
Leiðin liggur um fjölbreytt undirlag, víða grófa slóða og ár sem þarf að vaða.
Farangur er fluttur á milli gististaða og bera þátttakendur einungis dagsbúnað yfir daginn.
Ferð fyrir vana hjólara í góðu líkamlegu formi sem vilja upplifa hálendið á einstakan hátt.
Rafmagnshjól eru ekki leyfð í ferðinni.Undirbúningskvöld verður þriðjudaginn 30. júní í Mörkinni 6, kl. 20.
Farið verður yfir búnað, samflot, flutning á hjólum, sameiginlegar máltíðar og skipulag ferðarinnar.- Brottför/Mæting
- Kl. 12 á bílastæðinu við Orustuhól. Brottför þaðan kl. 13
- Fararstjórn
Haukur Eggertsson
- Innifalið
- Gisting, trúss á farangri og fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Skilmálar
Leiðarlýsing
1.d., föstud. Hjólað frá Orustuhól, upp Eldhraunið að skálanum Blæng undir samnefndu fjalli. Þar sem gist verður fyrstu nóttina. Eldhraunið rann í Móðuharðindunum 1783-1785 og er með mestu eldgosum á sögulegum tíma í heiminum.
Hjólað: um 35 km. Hækkun: um 600m
2.d. Hjólað í hlíðum Blængs yfir á Lakasvæðið með mögulegri göngu á Laka ef veður leyfir og viðkomu við Tjarngíg. Gist í gangnamannaskálanum í Hrossatungum. Talsvert af brekkum upp og niður.
Hjólað: um 40 km. Heildarhækkun: um 300m en lækkun 400m.
3.d. Hjóluð hraunslóð niður að Leiðólfsfelli og síðan verður Hellisá vaðin og þaðan hjólað ofan í Skaftárdal og norður eftir Fjallabaksvegi í Hólaskjól og síðan eftir reiðgötur um árgljúfur Syðri Ófæru yfir í Álftavatnakrók.
Leiðin niður í Skaftárdal er nokkuð gróf á köflum og gott að hafa vaðskó þegar fyrst Hellisá og síðar þegar Ófæra verður vaðin í gljúfrinu. Gist í Álftavatnakrók.
Hjólað: um 60 km. Hækkun: 450m hækkun. Lækkun: um 450m.
4.d. Hjólað verður yfir á Syðra fjallabak um Svartahnúk og Hólmsá vaðin. Farið um lítt farnar slóðir um svokallaða Einhyrningsleið og komið inn á Öldufellsleið skammt ofan Hólmsárfossa. Leiðinni fylgt niður á hringveg þar sem ferðin endar. Trússbíll sér um að aka bílstjórum til baka að Orustuhól að sækja bíla.
Hjólað: um 60 km. Hækkun: 250m. Lækkun: 650m




