Ferð: Jónmundur prestur og Sumarliði póstur

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Jónmundur prestur og Sumarliði póstur

Lýsing

Grunnavík er eyðibyggð suður af Jökulfjörðum. Á árum áður var blómleg byggð þar og á ströndinni inn Lónafjörð. Staður í Grunnavík var prestsetur sem þjónaði meðal annars íbúum á Hornbjargsvita. Seinasti prestur Staðarsóknar var séra Jónmundur Halldórsson sem þurfti að ganga tugi kílómetra til að hitta sóknarbörn sín í vitanum.
Saga Jónmundar er að hluta sögð í bókinni Fólkið í vitanum. Við fetum í fótspor hans og göngum frá Dynjanda og í Grunnavík
, þar sem við gistum í þrjár nætur í Sútarabúðum í svefnpokagistingu. Þá fetum við einnig í fótspor Sumarliða Brandssonar pósts sem lét lífið þegar hann hrapaði fram af Bjarnarnúpi ásamt hesti sínum.

Þátttakendur koma til Ísafjarðar þriðjudaginn 7. júlí og gista þar á eigin vegum. 

Brottför/Mæting
kl. 9:30 við bátabryggjuna á Ísafirði. Brottför kl.10.
Fararstjórn

Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir

Innifalið
Gisting, sigling, trúss á farangri og fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

     

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

 

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

 

 

 

Leiðarlýsing

1.d., miðvikud. Siglt frá Ísafirði til Dynjanda. Farangur er fluttur til Grunnavíkur. Gengið til Grunnavíkur með viðkomu á ísbjarnarslóðum á Höfðaströnd þar sem Ásthildur Gunnarsdóttir mætti ísbirninum haustið 2024. Við göngum um gil huldumeyjanna á heiðinni. Komið til Grunnavíkur undir kvöld. Gist í Sútarabúðum.
Ganga: 16. Km. Hækkun: 200 m.

2.d. Gengið á Maríuhorn, fremsta hnúk Staðarfjalls. Þar er að sögn altari þar sem ung óbyrja náði sambandi við Maríu mey sem færði henni barnalán. Kirkja séra Jónmundar Halldórssonar á Stað skoðuð eftir gönguna. Kvöldvaka og sögustund í Sútarabúðum þar sem örlög Sumarliða verða rifjuð upp. Ganga: 7 km. Hækkun: 300 m.

3.d. Gengið upp Snæfjallaheiði úr Grunnavík á Bjarnarnúp á örlagaslóðir Sumarliða Brandssonar pósts sem hrapaði til bana skammt utan við Súrnadal. Í framhaldinu fórust leitarmenn í snjóflóði. Eftir dauðaslysin gekk séra Jónmundur sömu leið til að jarða og minnast hinna látnu. Hús hans brann á meðan. Haldið til baka sömu leið og gist í Sútarabúðum. Ganga: 14 km. Hækkun: 500 m.

4.d. Pakkað saman og haldið frá Grunnavík til Ísafjarðar. Kveðjustund um hádegi.

Aðrar ferðir á Vestfjörðum sumarið 2026