Grunnavík, Jökulfirðir og Snæfjallaströnd
- Lýsing
Viltu upplifa einstaka fegurð Jökulfjarða og Snæfjallastrandar og uppgötva undur Hornstranda án þess að bera miklar byrðar í bakpokanum?
Viltu heyra spennandi sögur af svæðinu sem gengið er um og fá nasasjón af menningu og löngu horfnu mannlífi? Í þessari ferð verður hugað að ótrúlegum atburðum úr sögu svæðisins, menningu og mannlífi í nokkuð víðtækum skilningi og fjallað um skáldskap sem tengist svæðinu. Algerlega magnaðar sögur tengjast Grunnavík, einum af síðustu þéttbýlisstöðum Jökulfjarða/Hornstranda. Þar fæddust og bjuggu nokkrar lykilpersónur og leikendur í Íslandssögunni. Gamla póstleiðin yfir Snæfjallaheiði er vafalítið kveikjan að atburðum í skáldskap Jóns Kalmans í sagnabálkinum Himnaríki og helvíti.
Grunnavík er líka sviðið í mörgum spennandi atburðum sagnabálksins. Gengið er með léttan dagpoka með nesti og hlífðarfatnaði. Þátttakendur koma til Ísafjarðar, fimmtudaginn 16. júlí og gista þar á eigin vegum. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í fargjaldi en verður fluttur á gististaðinn.
- Brottför/Mæting
- Kl. 8:30 á bryggjuna á Ísafirði. Brottför kl. 9.
- Fararstjórn
- Innifalið
- Sigling, trúss, gisting, og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Eftirfarandi árbækur fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Greiðslumöguleikar
- Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
- Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest. - Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ. - Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.
Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.
Undirbúningur
Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.
Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.
Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.
Leiðarlýsing
1.d., föstud. Siglt að morgni 17. júlí í Grunnavík þar sem farangur og vistir eru fluttar í land. Áfram er svo siglt að Höfðaströnd þar sem gönguhópurinn fer í land með léttan dagpoka. Þaðan er svo gengið yfir lága heiði til Grunnavíkur. Farangurinn er gripinn við fjörukambinn þegar komið er niður í víkina og hann fluttur að gististaðnum. Gist er í hinu fræga býli Sútarabúðum í upphituðu húsi. Ganga: 14 km. Heildarhækkun: 180 m.
2.d. Farið í létta gönguferð út með víkinni að tveimur eyðibýlum og hugað að búskaparháttum og atvinnu á síðustu öld. Síðdegis er gengið út með víkinni og eftir hlíðum Maríuhorns þar sem við litumst um eftir heimskautarefnum. Ganga:11 km. Heildarhækkun: 25 m.
3.d. Gengið á Maríuhorn (350 m)en þaðan er gríðarlegt útsýni inn eftir Jökulfjörðum og út á Djúp. Komið er við á prestsetrinu að Stað þar sem raktar verða sögur þess og kirkjan skoðuð. Ganga: 8,5 km. Heildarhækkun: 390 m.
4.d. Gengið frá húsi og farangri sem verður sóttur við fjörukambinn. Gengið yfir Snæfjallaheiði (455 m) með dagpoka, hina gömlu og háu og sögufrægu póstleið að Berjadalsá/Sandeyri á Snæfjallaströnd. Þaðan er svo siglt aftur til Ísafjarðar síðdegis. Ganga: 16 km. Heildarhækkun: 650 m.
Vinsamlegast athugið að í þessari ferð getur gangan á Maríuhorn færst til milli daga með hliðsjón af veðri og skyggni.
Aðrar ferðir á Vestfjörðum sumarið 2026
- 8.-11. júlí - Jónmundur prestur og Sumarliði póstur
- 17.-20. júlí - Grunnavík, Jökulfirðir og Snæfjallaströnd
- 1.-3. ágúst - Konfektmolar við Arnarfjörð
- 4. ágúst - Sakamál á Sjöundá, Skor og Stálfjall






