Ferð: Kórónur Krepputungu

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Kórónur Krepputungu

Lýsing

Í Krepputungu leynast margir gullmolar, sem sjaldan er gaumur gefinn.
Í gönguferð í Sönghofsdal og að Gljúfrasmið er haldið á vit tveggja slíkra sem eru tvö helstu djásnin í kórónu Krepputungu. Sönghofsdalur er gullfalleg vin í eyðimörkinni, þar sem tónlist náttúrunnar ómar við réttar aðstæður.

Gljúfrasmiður þarf hins vegar engar réttar aðstæður; þar glymur beljandi Jökulsá á Fjöllum án afláts og státar af því hvernig hún hefur smíðað gljúfrin um aldir. Gengið er að fossinum að austanverðu, sem gefur sjaldséð sjónarhorn á tilkomumikið stuðlaberg, gljúfur og sjálfa drottninguna, Herðubreið.
Gangan kórónar heimsóknina í Krepputungu, en ekki er útilokað að lagið verði tekið og hljómburður kannaður. 

Brottför/Mæting
Brottför: kl. 11 á einkabílum á bílastæðinu við brúna yfir Kreppu.
Fararstjórn

Eggert Benedikt Guðmundsson

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Gott að vita:

Gangan er um 20 km fram og til baka á flatlendi, rétt sunnan við ármót Jökulsár og Kreppu.

Hentar vel fyrir þá sem taka þátt í ferðinni,
Drottning Herðubreið og sjóðheitir hverir Kverkfjalla
og vilja kynnast svæðinu enn betur, eða þá sem vilja upplifa ógleymanlega dagsferð á hálendinu. Gisting á eigin vegum.