Prjónagangan í Reykjanesbæ
- Lýsing
Jólagangan fer fram í Reykjanesbæ.
Við göngum um nýlegt útivistarsvæði sem enn er í mótun og meðfram sjávarsíðunni.Á leiðinni heimsækjum við systurnar Lilju Dögg og Mörtu sem reka Prjónasystur, litla og notalega prjónabúð við Víkurbraut hjá höfninni í Keflavík. Þær taka á móti okkur, kynna búðina og veita okkur innsýn í hannyrðaheim sinn. Þar gefst okkur tækifæri til að setjast niður, spjalla og prjóna saman. Ganga: 6 km
- Brottför/Mæting
- Kl. 18 við gistiheimilið Raven, Njarvík
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
FÍ Prjónagöngur
Prjónagöngur er fyrir alla, óháð aldri eða kyni.
Hvort sem þú ert vanur prjónari, heklari eða langar að læra, þá er þetta tilvalið tækifæri til að deila áhugamáli, njóta fersks lofts og hreyfingar í góðum félagsskap.
Göngurnar eru ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig.
Upphafsstaður göngu er við gistiheimilið Raven í Njarðvik. Sjá hér




