Vinnuferð í Langadal
- Lýsing
Nú hefjast framkvæmdir við endurbyggingu Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk, skála sem margir félagsmenn og landsmenn eiga sterkar minningar frá og þykir vænt um.
Helgina 12.–13. september verður farin fyrsta af þremur fyrirhuguðum vinnuferðum og óskar Ferðafélag Íslands eftir 20 duglegum og handlögnum sjálfboðaliðum.
Með þessari vinnuferð hefst nýr kafli í sögu Skagfjörðsskála og gefst þátttakendum kostur á að leggja hönd á plóg við undirbúning endurbyggingar skálans.
Í þessari fyrstu ferð verða meðal annars unnin eftirfarandi verkefni:- pallurinn við skálann rifinn
- skálinn tæmdur af innanstokksmunum og munum komið fyrir í gámi
Þetta verður hörku vinnuhelgi og hvetjum við þátttakendur sem eiga hentug verkfæri til að taka þau með sér.
Þar geta meðal annars komið að góðum notum borvél, bitasett, hamar, kúbein, tangir, topplyklasett og naglbítar.
Góðir vinnuhanskar eru einnig nauðsynlegir.- Brottför/Mæting
- Kl. 8 með rútu frá Menntaskólanum við Sund
- Innifalið
- Rúta, gisting, kvöldverður á laugardegi, morgunverður og hádegisverður á sunnudegi.
Dagskrá:
Laugardagur 12. September
Brottför með rútu frá Reykjavík kl. 08:00.
Þegar komið er í Langadal tekur verkstjóri á móti hópnum, fer yfir verkefni helgarinnar og úthlutar þeim.
Sunnudagur 13. September
Vinna hefst kl. 09:00. Áætluð brottför úr Þórsmörk er kl. 15:00.
Þátttakendur taka sjálfir með sér nesti fyrir laugardaginn og það sem þeir vilja hafa með sér til að grípa í milli mála.




