Ferð: Prjónaganga á Akranesi

Prjónaganga á Akranesi

FÍ Prjónagöngur
Lýsing

Að þessu sinni ætlum við að ganga um tvö samliggjandi útivistarsvæði á Akranesi.

Við göngum um Garðalund, sem skartar stórum og tignarlegum grenitrjám og góðum göngustíg. Við göngum einnig um Klapparholt, skógræktarsvæði í nálægð við Garðalund.

Að göngu lokinni ætlum við að heimsækja Rakel Rós sem rekur Garnikó. Þar veitir hún okkur innsýn í prjónaheim sinn og við fáum tækifæri til að grípa í prjónana.

Ganga: 5 – 6 km.

Brottför/Mæting
Kl. 11 við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
Fararstjórn

Ingibjörg Jónsdóttir og Hildur Björk Guðmundsdóttir 

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

FÍ Prjónagöngur

Prjónagöngur er fyrir alla, óháð aldri eða kyni.
Hvort sem þú ert vanur prjónari, heklari eða langar að læra, þá er þetta tilvalið tækifæri til að deila áhugamáli, njóta fersks lofts og hreyfingar í góðum félagsskap.

Göngurnar eru ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig.

Skrá mig í gönguna

Upphafsstaður göngu er við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi, sjá hér