Pöddulíf í Elliðaárdal
- Lýsing
Viltu sjá pöddur í návígi? Skordýr er fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Munum við finna moskítóflugur eða lúsmý?
Þeir Ólafur Patrick Ólafsson kennari í líffræði við HÍ og Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði og einn helsti sérfræðingur landsins á sviði skordýra, munu fræða okkur um heim skordýranna ásamt fjölda líffræðinema við HÍ.Takið með ílát og stækkunargler ef þið eigið. Ekki gleyma nesti.
Tími: 2-3 klst
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!- Brottför/Mæting
- Kl. 18 frá gömlu rafstöðinni við Elliðaár.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Fróðleikur
"Með fróðleik í fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023
Með fróðleik í fararnesti
Nánari upplýsingar síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.
Hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.




