Þyrill
- Lýsing
 Þriðja gangan af sex í Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar. Gangan á Þyril er alvöru ganga fyrir duglega krakka í stórbrotnu umhverfi. Fjölbreytt gönguleið sem bíður uppá stórkostlegt útsýni yfir Hvalfjörð og fjallahringinn þar í kring. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
Muna eftir nesti og góðum skóm. 4-5 klst. með akstri.
- Brottför/Mæting
 - kl. 11:00 á einkabílum frá N1 í Mosfellsbæ.
 - Fararstjórn
 
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
 - Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
 - Peysa úr ull eða flís
 - Göngubuxur / stuttbuxur
 
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
 - Áttaviti, landakort og GPS tæki
 - Smurt nesti fyrir daginn
 - Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
 - Vatnsbrúsi
 - Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
 - Höfuðljós
 - Göngustafir
 - Myndavél og kíkir
 - Sólgleraugu / skíðagleraugu
 - Sólarvörn og varasalvi
 - Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
 - Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
 - Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
 - Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
 - Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
 - Hleðslubanki
 
Fróðleikur
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
- 15. maí: Úlfarsfell
 - 21. maí: Selfjall
 - 2. júní: Þyrill
 - 28. ágúst: Helgarfell í Mosfellsdal
 - 8. september: Vífilsfell
 - 21. september: Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn
 
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!
								
								
								
								
												
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
															



