Ferð: Söguganga: Siglufjörður

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Söguganga: Siglufjörður

Mannlíf, náttúra og síldin, auðvitað
Lýsing

Saga Siglufjarðar og nágrennis nær alla leið frá landnámi Þormóðs ramma og er bæði stórbrotin og litrík. Hér hafa náttúra og mannlíf átt í afdrifaríkum samskiptum um aldabil og hvarvetna skynjum við hversu háð mannlífið er náttúruöflum og landslagi. Háir fjallgarðar, erfiðar samgöngur, óblíð vetrarveður, sumarsæla og gjöfular síldargöngur með tilheyrandi uppbyggingu ásamt einstakri sögu þjóðlagasöfnunar er meðal þess sem Sögugangan í ár færir okkur nær.

Aðsetur sögugöngunnar verður í hjarta Siglufjarðar á Sigló hóteli sem er fjögurra stjörnu hótel. Góð aðstaða er þar fyrir sögustundir.

Gist er í uppbúnum rúmum í tveggja manna herbergjum með baði.

Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem Sögugangan hefur aðsetur í bæjarfélagi verður kvöldverður á fleiri en einum stað í bænum.

Fararstjórn

Sigrún Valbergsdóttir og sögufræðari: Ólöf Ýrr Atladóttir

Innifalið
Gisting, fullt fæði (morgunverður, nesti og kvöldverður), leiðsögn um Síldarminjasafnið, sigling, sögufræðsla og fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gegnum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

 

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., miðvikud. Komið á eigin bílum til Siglufjarðar og safnast saman til sögustundar kl. 20:30 á Sigló hóteli.

2.d. Gengið frá Sigló hóteli að ýmsum sögustöðum bæjarins og upp í Hvanneyrarskál. Síðdegis, leiðsögn um Síldarminjasafnið. Kvöldverður í Síldarkaffinu.
Ganga: um 7 km. Hækkun/lækkun: um 200 m.

3.d. Siglt yfir á Siglunes með Örkinni, rölt um Siglunes og að Reyðará. Náttúrutúlkun og sögur sagðar í Örkinni á leið til baka á Siglufjörð. Kvöldverður á Marokkóska veitingastaðnum Hótel Siglunesi.

4.d. Safnast saman í bíla og keyrt langleiðina upp í Siglufjarðarskarð. Gengið upp í skarðið og niður í Fljót eftir gömlu Póstmannaleiðinni. Komið við að Hraunum í bakaleiðinni til að skoða menjar um verbúðir. Kvöldverður á Hótel Sigló.
Ganga: um 12 km. Hækkun: um 300 m/lækkun um 500 m.

5.d. Sögulok og heimferð. Komið við í Haganesvík, gamla þorpið skoðað og spáð í sögur og mannlíf fyrri tíma.

Gott að vita:

  • Gist verður á Sigló hótel í uppbúnum rúmum í tveggja manna herbergjum með baði.
  • Aðgangseyrir að Síldarminjasafninu er ekki
    innifalinn í verði.