Ferð: Vífilsfell

Suðvesturland

Vífilsfell

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Lýsing

Fimmta gangan af sex í Fjallagarpaverkefninu er á hið hnarreista Vífilsfell sem er allt í senn krefjandi, fjölbreytt og skemmtilegt. Þetta er alvöru fjall fyrir unga fjallagarpa enda um 665 m. Nú þarf að muna eftir góðum skóm, uppáhalds nestinu og vatni.
Það má hitta okkur við upphafsstað göngunnar við bílastæði við Bolöldur, þar sem gangan hefst kl. 10:30.
Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.

Muna eftir nesti og góðum skóm. 4-5 klst.

Brottför/Mæting
Kl. 10 frá Olís Norðlingaholti
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!

Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi. Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur. Gönguferðirnar verða sumarið 2024.