Ferð: Hengill – Vörðuskeggi frá Hellisheiðarvirkjun

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Hengill – Vörðuskeggi frá Hellisheiðarvirkjun

Lýsing

Flott haustganga um Hengilssvæðið í næsta nágrenni við Reykjavík.  
Hengillinn er eitt af mest áberandi fjallaklösunum í nágrenni Reykjavíkur. Hann blasir við höfuðborgarbúum í norðaustur átt með hæsta tindinn, Vörðuskeggja mest áberandi. Gil í norður og vesturhlíðum hans eru oft full af snjó fram eftir sumri og hafa seinni ár orðið mjög vinsæl til að stunda fjallaskíði.

Gengið verður um fjölbreytt landslag og aflíðandi brekkur, með mestri hækkun í upphafi og síðan aftur upp á Vörðuskeggja, hæsta punkt Hengilsins. Á bakaleiðinni er farið niður að skálanum í Innstadal og gengið þaðan yfir að Sleggjubeinsskarði.

Gengið verður rólega og gefinn góður tími til að njóta umhverfisins og víðsýnisins. Af Hengilssvæðinu er fallegt útsýni yfir nærliggjandi fjöll, Þingvallasvæðið og höfuðborgarsvæðið.

Á þessum árstíma geta aðstæður verið breytilegar til fjalla og því er gott að hafa keðjubrodda með í bakpokanum. Gott er að hafa með sér nesti og eitthvað heitt á brúsa.

Að göngu lokinni geta þeir sem vilja lengt daginn örlítið og skellt sér í sund í Sundlauginni Laugaskarði í Hveragerði.

Brottför/Mæting
Mæting: Kl. 10:00 á upphafsstað göngunnar. Nákvæm staðsetning og leið að upphafsstað verður send þátttakendum fyrir ferð
Fararstjórn

Bergur Pálsson

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Nánari upplýsingar

  • Ganga: um 15 km
  • Hækkun: um 700 m
  • Göngutími: um 6 klst.
  • Búnaður: keðjubroddar
  • Gott nesti og heitt á brúsa