Ferð: Vörðufell á Skeiðum

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Vörðufell á Skeiðum

Lýsing

Notaleg haustganga á Vörðufell á Skeiðum, fallegt útsýnisfjall í nágrenni Skálholts og Laugaráss. Þótt fjallið sé ekki hátt er víðsýnt af því og landslagið fjölbreytt.

Vörðufell er áberandi fjall þegar farið er um Árnessýslu. Það er 391 m yfir sjó og er staðsett sunnan Hvítár en er bæði á Skeiðum og í Biskupstungum. Fellið er þríhyrningslaga og er hæsti hnúkurinn á suð austur endanum. Þó það sé ekki hátt er mikil útsýn þegar upp er komið og fallegar gönguleiðir á fjallið og margt að sjá. Uppi á fjallinu liggur lítið vatn í kvos sem heitir Úlfsvatn.

Gengið verður um gróið og fallegt svæði. Nokkur hækkun er í upphafi en síðan verður genginn hringur uppi á fjallinu og umhverfis Úlfsvatn, lítið vatn sem liggur í kvos á fjallinu.
Gott er að hafa með sér nesti og eitthvað heitt á brúsa.

Að göngu lokinni geta þeir sem vilja lengt daginn örlítið og skellt sér í Skeiðalaug í Brautarholti eða slakað á í Laugarás Lagoon.

Brottför/Mæting
Upphaf göngu er kl. 11:00. Nákvæm staðsetning og leið að upphafsstað verður send þátttakendum fyrir ferð.
Fararstjórn

Bergur Pálsson

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Nánari upplýsingar

  • Ganga: um 10 km
  • Hækkun: um 400 m
  • Göngutími: um 5 klst.
  • Gott nesti og heitt á brúsa