Árbækur

Árbók 2019 - Mosfellsheiði - Landslag, leiðir og saga

92. árbók Ferðafélags Íslands fjallar um Mosfellsheiði sem hefur gegnt merkilegu hlutverki í sögu samgangna milli Innnesja og Árnessýslu frá upphafi og lumar á ótal skemmtilegum gönguleiðum, sumum vörðum prýddum eins og forsíða bókarinnar ber vitni um.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
8.900 kr.
Árbók 2019 - Mosfellsheiði - Landslag, leiðir og saga
Árbók 2019 - Mosfellsheiði - Landslag, leiðir og saga

Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út í nítugasta og annað sinn. Þótt svæðið, sem er til umfjöllunar, sé minna en oft áður má færa rök fyrir því að aldrei fyrr hafi jafnmargir lesendur átt svo auðveldan aðgang að viðfangsefni árbókar í sínu nánasta umhverfi. Mosfellsheiði hefur gegnt merkilegu hlutverki í sögu samgangna milli Innnesja og Árnessýslu frá upphafi og lumar á ótal skemmtilegum gönguleiðum, sumum vörðum prýddum eins og forsíða bókarinnar ber vitni um.

Höfundar árbókarinnar eru þrír: Bjarki Bjarnason, Margrét Sveinbjörnsdóttir og Jón Svanþórsson. Þau eru öll þaulkunnug heiðinni og lýsa náttúrufari hennar, landslagi og ferðaleiðum auk þess að færa lesendum sögulegan fróðleik þar sem Þingvellir koma mjög við sögu.

Bókin er 244 blaðsíður með 190 ljósmyndum og teikningum ásamt 19 uppdráttum Guðmundar Ó. Ingvarssonar. Hjónin Þóra Hrönn Njálsdóttir og Sigurjón Pétursson eru höfundar langflestra þeirra ljósmynda sem voru beinlínis teknar fyrir útgáfuna. Að auki eru birtar gamlar ljósmyndir úr ýmsum áttum. Heimildaskrá ásamt mannanafna- og staðanafnaskrá eru á hefðbundnum stað. Að venju er í bókarlok yfirlit yfir starf Ferðafélagsins og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2018.

Ritstjóri árbókarinnar er Gísli Már Gíslason, og ritnefnd skipa auk hans Daníel Bergmann, Eiríkur Þormóðsson og Guðrún Kvaran.