Karfan er tóm.
Bjarki Bjarnason er höfundur árbókarinnar, hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá bernskuskeiði. Í væntanlegri árbók eru margar nýjar og áhugaverðar ljósmyndir sem Daníel Bergmann tók, hann er einnig umbrotsmaður og ritstjóri bókarinnar. Í bókinni eru allmörg kort sem Ingibjörg Jónsdóttir vann, þarna er meðal annars að finna jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósarsýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni. Í ritnefnd árbókar sitja Gísli Már Gíslason formaður, Guðrún Kvaran, Eiríkur Þormóðsson, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Pétur Eggerz.
Yfir sögusviði árbókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem hefur fylgst með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá upphafi vega. Bókin fjallar um sýsluna frá
margvíslegum sjónarhornum, hún skiptist í tíu hluta, sem dæmi fjallar einn hlutinn um náttúrufar, annar um kirkjur og kristnihald og sá þriðji um dýrin stór og smá.