Ferð: Akrafjall og Guðlaug

Suðvesturland

Akrafjall og Guðlaug

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Lýsing

Akrafjall (Háihnjúkur) og Guðlaug
Þriðja gangan af sex í
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar.
Akrafjall er formfagurt fjall, rétt við bæjarmörk Akraness, kennileiti sem breytir um svip eftir sjónarhorninu. Það er klofið í tvo hluta inn að miðju af Berjadal og eftir honum rennur Berjadalsá. Fjallið er mest gert úr blágrýti en stuðlaberg finnst þar einnig víða.

Eftir gönguna liggur leiðin niður á Langasand, þar sem við heimsækjum Guðlaugu, heita laug í fallegum grjótgarði við sjóinn. Þar gefst kostur á notalegri hvíld eftir gönguna, að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins.

Aðgangur að Guðlaugu
Það er frítt fyrir börn og ungmenni 17 ára og yngri, en 18 ára og eldir greiða kr. 2,700. (Hver fjölskylda greiðir fyrir sig.) 

Muna eftir nesti og góðum skóm. 4-5 klst. með akstri.  Gangan er um 6 km og hækkunin í kringum 500 m.

Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna. 

Brottför/Mæting
Kl. 11 á einkabílum frá N1 í Mosfellsbæ.
Fararstjórn

Steinunn Leifsdóttir og NafnJóhann Aron Traustason

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta,
bara mæta!

Fyrir þau ykkar sem ælta að mæta beint á upphafstað göngunar
Hér er hlekkur á  Google Maps  sem sýnir bílastæðið þar sem gangan hefst.