Sporhelludalur
- Lýsing
 Fimmta gangan af sex í Fjallagarpaverkefninu og er hún á fallega Hengilssvæðinu. Hringur um fjölbreytt landslag með fallegu útsýni. Nú þarf að muna eftir góðum skóm, uppáhalds nestinu og vatni.
Muna eftir nesti og góðum skóm.
Tími: 4 klst. Lengd: 5 km. Hækkun: 150mÞau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
- Brottför/Mæting
 - Brottför: Kl. 10 frá Olís Norðlingaholti
 - Fararstjórn
 
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
 - Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
 - Peysa úr ull eða flís
 - Göngubuxur / stuttbuxur
 
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
 - Áttaviti, landakort og GPS tæki
 - Smurt nesti fyrir daginn
 - Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
 - Vatnsbrúsi
 - Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
 - Höfuðljós
 - Göngustafir
 - Myndavél og kíkir
 - Sólgleraugu / skíðagleraugu
 - Sólarvörn og varasalvi
 - Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
 - Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
 - Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
 - Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
 - Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
 - Hleðslubanki
 
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
- 14. maí. Úlfarsfell
 - 20. maí. Helgafell Hafnarfirði
 - 1. júní. Akrafjall (Háihnjúkur) og Guðlaug
 - 27. ágúst. Tröllafoss
 - 7. september. Sporhelludalur
 - 13. september. Esjan og ísbíllinn
 
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta,
bara mæta!
								
								
								
								
												
								
								
								
								
								
								
								
								
								
															



