Ferð: Úlfarsfell

Suðvesturland

Úlfarsfell

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Lýsing

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar fer af stað á ný. Gengið verður á sex fjöll þetta árið, þrjú að vori og þrjú að hausti. Verkefninu lýkur með göngu á Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
Fyrsta gangan af sex í fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar er á Úlfarsfell sem er þægilegt og aðgengilegt. Farið verður rólega og ætti gangan því að vera við allra hæfi. Muna eftir nesti og góðum skóm. 2-2,5 klst.

 

Brottför/Mæting
Kl. 17 frá bílastæðinu við Úlfarsfell Mosfellsbæjar megin.
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!