Selfjall og Sandfell ofan Lækjarbotna
- Lýsing
FÍ Gengið og spjallað – Selfjall og Sandfell
Komdu með í skemmtilega göngu á Selfjall og Sandfell ofan Lækjarbotna!
FÍ Gengið og spjallað er fyrir öll sem vilja njóta útiveru, hreyfa sig og kynnast nýju fólki í afslöppuðu og vinalegu umhverfi.
Markmiðið er að leiða saman Íslendinga og fólk af erlendum uppruna, njóta íslenskrar náttúru og skapa tækifæri til að æfa íslenskuna í gegnum létt og skemmtilegt spjall á göngu.
FÍ Walk & Talk – Selfjall and SandfellJoin us for a friendly hike up Selfjall and Sandfell, just outside Reykjavík!
FÍ Walk & Talk welcomes everyone who enjoys the outdoors, staying active and meeting new people in a relaxed and friendly atmosphere.
Our aim is to bring Icelanders and people from different backgrounds together to enjoy Icelandic nature, make new connections and practise Icelandic through friendly conversations along the way.-
-
Fararstjórn/ Guides: Justyna Wroblewska and
Sólmundur Már Jónsson.
Languages: Simple Icelandic, (English, Polish and Spanish.)
Innifalið / Included: Fararstjórn/ Guided hike
Göngurnar eru ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig.
The hikes are free! Just make sure to sign up in advance.
-
-
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Um gönguna / About the Hike
Göngulýsing
Mæting: Kl. 10:00 á bílastæðinu ofan við Waldorfskólann í Lækjarbotnum.
Gangan hefst ofan við Waldorfskólann í Lækjarbotnum. Þaðan er gengið upp á Selfjall og áfram að Sandfelli. Á leiðinni er fjölbreytt landslag og fallegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og til fjallanna í átt að Hengli.
Ganga: Um 7,5 km. Hækkun: Um 350 m. Göngutími: 2,5–3 klst.
About the Hike
Meeting point: 10:00 AM at the parking area above the Waldorf School in Lækjarbotnar.
The hike starts above the Waldorf School in Lækjarbotnar. From there, we walk up Selfjall and continue towards Sandfell. Along the way, we will enjoy varied landscapes and beautiful views over the Reykjavík area and towards the Hengill mountains.
Distance: Approx. 7.5 km. Elevation gain: Approx. 350 m. Duration: 2.5–3 hours.
Gott að vita /Good to know
Búnaður: Góðir gönguskór, hlýr fatnaður, göngubroddar, höfuðljós, heitur drykkur og nesti.
Mæting: Kl. 10:00 á bílastæðinu ofan við Waldorfskólann í Lækjarbotnum.
Upphafsstaður göngunnar – Google Maps
Equipment: Good hiking boots, warm clothing, ice grips, a headlamp, a hot drink and snacks.
Meeting point: 10:00 AM at the parking area above the Waldorf School in Lækjarbotnar.




