FÍ Meistaradeildin

Um verkefnið 2021

Meistaradeildin er nýtt verkefni á vegum Ferðafélags Íslands. Verkefnið er fyrir fólk sem hefur mikla reynslu af fjallgöngum og er í góðu formi. Verkefnið samanstendur af 15 fjallgöngum og göngu á Hvannadalshnúk um Virkisjökul og Dyrhamar.

Mikil áhersla er lögð á öryggi þátttakenda og eru umsjónarmenn þaulvanir fjalla- og björgunarsveitarmenn og er hámarksfjöldi í hópnum 24. Þetta er því einstakt tækifæri á að gera árið að einu samfelldu fjallaævintýri.

Á dagskránni eru 15 fjallgöngur sem allar eru krefjandi að vetrarlagi og svo spennandi leiðangur á Hnúkinn um Virkisjökul með viðkomu á Dyrhamri. Hugsanlega þarf mannbrodda og ísexi í þeim öllum og er gerð krafa um að sá búnaður verði með í öllum ferðum ásamt göngubelti. Línur verða með í öllum ferðum til að tryggja öryggi þátttakenda og verða þær notaðar þegar það á við.

Innifalið í þátttökugjaldinu er fræðsla, undirbúningur og leiðsögn ásamt heilum degi til að æfa göngu á jöklabroddum og notkun á ísaxarbremsu.

Kynningarfundur þriðjud. 5.janúar kl.18.30. 

KYNNINGARFUNDUR

Umsjón: Hjalti Björnsson.

Verð: 76.900 árgjald FÍ 2021 innifalið.


Dagskrá Meistaradeildarinnar 2021

Dagsetning Vikudagur Áfangastaður Lengd/hækkun
17.01. Sunnudagur Hvalfell 17km/848m
31.01. Sunnudagur Heiðarhorn 13km/1060m
14.02. Sunnudagur Botnssúlur 13,5 km/ 1095m
28.02. Sunnudagur Tröllatindar 17 km/930m
14.03. Sunnudagur Skyrtunna 16,5km/990m
28.03. Sunnudagur Hafursfell 9km/759m
11.04. Sunnudagur Tröllakirkja á Kolbeinsstaðafjalli og Kolbeinsstaðafjall 10 km/ 862m
25.04. Sunnudagur Örn - Tröllkarl 10,5 km/767m
02.05. Sunnudagur Lómagnúpur, bóndaleið 14 km/950m
15.05. Laugardagur Hvannadalshnúkur – um Dyrhamar og Virkisjökul 23km/2110m
29.08. Sunnudagur Þórisjökull 17 km/1350m
19.09. Sunnudagur Elliðatindar á Snæfellsnesi 10,5 km/864m
03.10. Sunnudagur Innsta Jarlhetta 16 km/1082m
17.10. Sunnudagur Skessuhorn 14 km/967m
31.10. Sunnudagur Hreggnasi við Ljósufjöll á Snæfellsnesi 13,2 km/947m
14.11. Sunnudagur Hestur á Snæfellsnesi 18 km/854m

 

Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða endurskipuleggja dagskrá fjallaverkefna félagsins vegna sóttvarnarfyrirmæla í tengslum við Covid 19 eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Tryggingar: Ferðafélag Íslands tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Félagið hvetur fólk til að kaupa ferða- og slysatryggingar fyrir ferðir.

 

Verkefnið er fullbókað. Eigum til örfá laus pláss í verkefnið FÍ Alla leið 2021- hópur II

FÍ Alla leið 2021