Afmælisganga HSSK á Vífilsfell laugardaginn 28 september frá 11:00-15:00

Hjálparsveit skáta í Kópavogi (HSSK) fagnar 50 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni býður sveitin upp á göngu á Vífilsfell næstkomandi laugardag.    Vífilsfell er að hluta í landi Kópavogs og félagar sveitarinnar líta það sem fjallið sitt.   Nýliðaþjálfun hvert ár hefst með göngu á fjallið.

Að þessu sinni er öllum frjálst að koma með og félagar sveitarinnar verða á gönguleiðinni og veita aðstoð og leiðsögn.  

Fjölmennum á Vífilsfell á næsta laugardag.  Beygt er út af Suðurlandsvegi til hægri, rétt ofan við Sandskeið og stefnan tekin í sandnámurnar.  Þar eru bílastæði og félagar HSSK verða til aðstoðar.