Fjall mánaðarins í mars er Akrafjall 643 m.

Þriðja ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2013 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 16 mars.

Akrafjall er svipmikið fjall vestan Hvalfjarðar. Fjallið er raunar klofið í tvo hluta af miklum dal sem heitir Berjadalur og myndar þannig tvo kamba. Geirmundartindur er hæsti hnúkurinn og er á norðanverðu fjallinu. Háihnúkur og Jókubunga eru á sunnanverðu fjallinu. Fjallið er rofleif eftir ísaldarjökla. Þeir hafa grafið djúpann Hvalfjörðinn og mótað fjöllin umhverfis hann.

 

Akrafjall
Akrafjall. Berjadalur blasir við..

 

Upphafstaður göngunnar er við mynni Berjadals skammt frá vatnsbóli Akurnesinga.

Ekið er sem leið liggur í gegnum Hvalfjarðargöngin og farinn Akrafjallsvegur (51)  áfram að Akranesi. Ekki á að beygja inn í bæinn  heldur fara til hægri til norðurs stuttan spöl uns komið er að afleggjara sem liggur upp að mynni Berjadals þar sem vatsbólin eru.

Akrafjall-kort

Gangan hefst þar  kl: 10.00. en þeir sem vilja, geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 9.00.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.

 

  • Gangan á Akrafjall er 5 km. fram og til baka. Hækkun göngunnar er 500 m.
  • Gera má gera ráð fyrir að hópurinn verði aftur við bíla um kl. 15.00
  • Klæðnað og útbúnað þarf að miða við veður og aðstæður. Munið eftir hálkubroddum.

 

Fararstjórar eru:

Örvar Aðalsteinsson                8993109
Ævar Aðalsteinsson                6965531
Ólafía Aðalsteinsdóttir           8622863
Einar Ragnar Sigurðsson         8998803
Pétur Ásbjörnsson                   8987960
Sigrún Hallgrímsdóttir            6617746