Ferð: Birnudalstindur

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Birnudalstindur

Fagur tindur í stórbrotnum fjallasal
Lýsing

Birnudalstindur (1400 m) er tindur í Kálfafellsfjöllum, einn margra í sunnanverðum Vatnajökli. Hann minnir helst á skipsstafn séð frá veginum, en leiðin er stórkostleg og minnir á Alpana þar sem skriðjöklar steypast niður þverhnípta dali.
Útsýnið af toppnum er stórbrotið til allra átta. Mjög krefjandi fjallganga þar sem gengnar eru eggjarnar inn að tindinum.

Brottför/Mæting
Kl. 5 að morgni á einkabílum frá Kálfafellsstaðakirkju.
Fararstjórn

Hjalti Björnsson.

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð á jökli

Ísland liggur við heimskautsbaug og alltaf má búast við vondum veðrum, sér í lagi þegar ferðast er á há fjöll eða jökla. Jafnframt krefjast jöklaferðir margvíslegs öryggisbúnaðar og því er dagpoki jöklaferðalangs töluvert þyngri en þegar gengið er á lægri fjöll utan jökla.

Athugið að enginn skyldi ferðast einn á jökli. Á sprungusvæðum jökla þarf að ganga í línu og lágmarkið er þrír í línu. Aðeins þeir sem hafa góða þekkingu á sprungubjörgun ættu að ferðast án fararstjóra á jökli.

Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
  • Mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís
  • Peysa úr ull, flís eða mjúkskel
  • Göngubuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi. Nauðsynlegt er að taka nóg af vatni þegar ferðast er lengi á jökli
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar
  • Hleðslubanki

Öryggisbúnaður

  • Belti með karabínu
  • Jöklabroddar sem búið er að stilla á gönguskóna
  • Ísöxi
  • Jöklalína (hjá fararstjóra)
  • Sprungubjörgunarbúnaður (hjá fararstjóra)
  • Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng og skófla ef ferðast er um möguleg snjóflóðasvæði

Ef fjallaskíðaferð

  • Fjallaskíði og stafir
  • Skíðahjálmur
  • Skinn undir skíðin
  • Broddar undir skíðin

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Gott að vita

  • Sunnudagurinn 14. júní til vara - takið daginn frá!
  • Krafa um þekkingu á notkun jöklabúnaðar.
    • Ísexi, jöklabroddar, göngubelti með karabínu og hjálmur.
  • Gisting á eigin vegum
  • Ganga: 24. km
  • Göngutími: 15-16 klst.
  • Lágmarks aldur: 16 ára

Hægt er að leigja jöklabúnað hjá Ferðafélagi Íslands fyrir þessa ferð með því að smella HÉR