Ferð: Herstöðvar og horfið mannlíf

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Herstöðvar og horfið mannlíf

Lýsing

Eyðibyggðirnar á vesturhluta Hornstranda bjóða upp á magnað landslag og áhugaverða sögu. Þar var áður iðandi mannlíf, bæði í þorpum og herstöðvum. Gengið verður með dagpoka alla daga frá Stakkadal, en þar gistum við þrjár nætur í húsi.

Hér gildir að pakka létt, en vera samt með allan nauðsynlegan búnað, vaðskó, fatnað, mat og drykk til ferðarinnar. Sameiginlegur kvöldmatur verður tvö kvöld í Stakkadal fyrir þá sem vilja, en að öðru leyti sér hver um sinn mat.

Fremur erfið þriggja skóa ferð, langar dagleiðir, nokkur hækkun og víða grýttar slóðir. Nauðsynlegt að vera í góðu formi til þess að njóta ferðarinnar og gott að miða við að geta farið upp að Steini í Esju á um klukkutíma. Sameiginlegur kvöldmatur er ekki innifalinn í verði.
Þátttakendur koma til Ísafjarðar miðvikudeginum 1. júlí og gista þar á eigin vegum.

Að ferð lokinni er í boði að borða saman á Tjöruhúsinu á Ísafirði. Fararstjórar sjá um að taka niður pantanir fyrir ferð og panta borð, en hver og einn borgar fyrir sig.

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 við bátabryggjuna á Ísafirði. Brottför kl. 9.
Fararstjórn

Sofia Jóhannsdóttir og Pétur Bjarnason

Innifalið
Gisting, siglingar, trúss og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

 

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

 

Leiðarlýsing

1.d. fimmtud. Siglum í Fljótavík og hefjum gönguferð dagsins þar. Farangur verður settur í land í Látravík og trússaður heim í Stakkadal. Gengið verður með dagpoka frá Atlastöðum, stutt inn með Fljótavatni og yfir það á vaði við Langanes. Þaðan er gengið nokkuð bratta götu upp Tungudalinn og um Tunguheiði og stefnan tekin á Látra og þaðan í Stakkadal. Gistum í húsi í Stakkadal í þrjár nætur, en þangað verður búið að flytja farangurinn.
Ganga: 13,5 km. Hækkun um 480 m. Göngutími: um 6 klst.

2.d.
Gengið frá Stakkadal til Látra, þorpið skoðað og síðan haldið upp á Straumnesfjall, þar sem hægt er að virða fyrir sér herstöð Bandaríkjamanna frá stríðsárunum. Til baka er gengið um Öldudal og þaðan niður undir Rekavíkurvatn og til baka að Stakkadal. Léttur bakpoki, með nesti og hlífðarfatnaði. Ganga: 25 km. Hækkun 440 m. Göngutími: um 10 klst.

3.d
. Gengið frá Stakkadal suður eftir strönd Aðalvíkur, fyrir Hvarfnúp og til Sæbóls. Hér getur þurft að fara um svokölluð Tök í Hvarfnúp en það getur verið reynst erfitt fyrir lofthrædda. Ef veður verður hagstætt og stemning fyrir lengri göngu, þá göngum við þaðan á fjallið Darra og skoðum leifar bækistöðvar Breta á fjallinu. Gengið til baka að Stakkadal. Léttur bakpoki, með nesti og hlífðarfatnaði. Ganga: 15 km. Ganga á Darra 22 km. Hækkun um 490 m. Göngutími: 7 klst.

4.d. Göngum frá farangri sem við ætlum ekki að nota í gönguferð dagsins og verður hann trússaður niður á bryggju í Látravík. Gengið með dagpoka með nesti og hlífðarfatnaði frá Stakkadal um Hesteyrarskarð til Hesteyrar í samnefndum firði. Þangað verðum við sótt á bát og með okkur siglt til baka til Ísafjarðar, um kl. 15:30. Ganga: 10 km. Hækkun um 270 m. Göngutími: um 5 klst.