Ferð: Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík  II

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Hesteyri, Kagrafell og Sæból í Aðalvík  II

Lýsing

Langar þig að upplifa magnaða fegurð Hornstranda og uppgötva undur friðlandsins með létta byrði í bakpokanum? Viltu gista í uppbúnu rúmi í Læknishúsinu heimsfræga á Hesteyri og gera vel við þig í mat? Heyra sögur af svæðinu og fá nasasjón af menningu og löngu horfnu mannlífi? Hefur þú ekki alltaf viljað horfast í augu við íslenska heimskautarefinn?   
Þetta er allt hægt í sögulegri Jónsmessuferð þar sem gist er í tvær nætur í Læknishúsinu og gengið um friðlandið á Hornströndum í góðum félagsskap. Tveir af helstu þéttbýliskjörnum Hornstranda eru heimsóttir, Sæból og Hesteyri. 
Þátttakendur koma til Ísafjarðar fimmtudaginn 18. júní og gista þar á eigin vegum. 

Vinsamlegast athugið að í þessari ferð getur gangan á Kagrafell færst til milli daga með hliðsjón af veðri og skyggni.

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 við bátabryggjuna á Ísafirði. Brottför kl. 9
Fararstjórn

Jón Örn Guðbjartsson.

Innifalið
Sigling, gisting, matur á Hesteyri og fararstjórn. 

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

 

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

 

Leiðarlýsing

1.d., föstud. Siglt er á Hesteyri í Jökulfjörðum. Eftir að fólk hefur komið sér fyrir í Læknishúsinu er dagurinn nýttur til að skoða hvalstöðina á Stekkeyri, þorpið og kirkjugarðinn. Vikið er að menningu og mannlífi áður en kræsinga er notið í Læknishúsinu um kvöldið. Ganga: 9 km. Heildarhækkun: 55 m.

2.d. Gengið um Hesteyrarskarð upp á hið fagra Kagrafell (507 m) með gríðarlegu útsýni yfir Aðalvík, Miðvík og Rekavík bak Látur auk Straumnesfjalls. Þar eru minjar um veru Bandaríkjamanna sýnilegar. Ýmsar sögur rifjaðar upp sem tengjast veru þeirra á fjallinu.

Af Kagrafelli er einnig mikið útsýni yfir Jökulfirði. Sögur verða einnig sagðar af sjálfri Aðalvíkinni og ábúendum. Um kvöldið eru kræsingar í Læknishúsinu. Ganga: 13,5 km. Heildarhækkun: 590 m.

3.d. Gengið frá Hesteyri yfir að Sæbóli í Aðalvík. Farið er yfir Sléttuheiði (316 m) með gríðarlegu útsýni yfir Jökulfirði, Drangajökul og Ísafjarðardjúp. Á leiðinni sér niður á Sléttu í Jökulfjörðum og yfir á sögustaðinn Grunnavík. Sagðar eru sögur af mannlífi þar og líka á Sæbóli og kirkjan á Stað skoðuð. Göngufólk er sótt síðdegis að Sæbóli og siglt yfir til Ísafjarðar. Ganga: 15 km. Heildar hækkun: 345 m