Ljósaganga og jólasveinar
Ferðafélag barnanna
- Lýsing
Mætum í gönguna með stjörnuljós, vasaljós eða höfuðljós og svo er gengið fylktu liði frá Nauthólsvík um dimma skógarstíga Öskjuhlíðarinnar. Söngur og gleði og mögulega leynast jólasveinar í skóginum. Tími: 1,5 klst.
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!
- Brottför/Mæting
- Kl. 17:30 frá bílastæðinu við Kaffi Nauthól í Nauthólsvík.
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Leiðarlýsing
Muna eftir vasaljósum og vera klædd eftir veðri




