Ferð: Refir, sjóböð og ævintýri í Hlöðuvík

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Refir, sjóböð og ævintýri í Hlöðuvík

Ferðafélag barnanna
Lýsing

Fjögurra daga fjölskylduferð á Hornstrandir þar sem náttúran býður upp á leik, ævintýri og kyrrð. Við siglum frá Ísafirði inn að Hesteyri og göngum þaðan yfir til Hlöðuvíkur, þar sem við gistum í þrjár nætur. Við sjáum refi á leik og seli sem hvíla sig á skerjum og fjöru fulla af lífi.
Í Hlöðuvík förum við í gönguferðir, útileiki og sjósund ef veður leyfir. Á kvöldin njótum við samveru, borðum góðan mat, spilum, segjum sögur og kveikjum varðeld. Bátur flytur farangur yfir í Hlöðuvík. Gengið með dagpoka.

Lágmarks aldur í ferðina er 8 ára

Vinsamlegast athugið að í þessari ferð geta göngur færst til eða breyst milli daga með hliðsjón af veðri og skyggni.


Hægt að greiða ferðir með raðgreiðslum eða netgíró.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir greiðsludreifingu

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 mæting bátabryggjuna á Ísafirði. Brottför kl. 9.  
Fararstjórn

Lilja Dögg Guðmundsdóttir og Steinunn Leifsdóttir.

Innifalið
Sigling, gisting og farastjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Ferðalýsing

1.d., föstud. Siglt inn að Hesteyri, þar sem gangan byrjar. Gengið er inn eftir Hesteyrarfirði og upp í Kjaransvíkurskarð með útsýni niður í víkina. Vaða þarf bæði ósinn í Kjaransvíkinni og í Hlöðuvíkinni. Komum okkur fyrir í skála. Eldum góðan mat og göngum svo til náða.
Ganga: 17 km. Hækkun um 600 m.

2.d.
Vöknum kl. 08:30. Göngum upp Skálakamb og inn í Atlaskarð, þar sem útsýnið lætur engan ósnortinn. Í góðu skyggni sést niður í Rekavík bak við höfn, út eftir Hornvík og upp Hornbjargið. Kvöldið fer í að borða góðan mat, fara í leiki og njóta á kvöldvöku.
Ganga: um 13 km. Uppsöfnuð hækkun: 500 m.

3.d.
Vöknum kl. 08:30. Leggjum af stað eftir strandlengjunni að Teigakambi. Við vöðum yfir ósinn í Hlöðuvík og Kjaransvíkinni. Skoðum fjöruna, finnum furðufiska og förum í sjóinn ef veður leyfir. Kvöldvaka og varðeldur. Ganga: 8 km. Hækkun: óveruleg.

4.d.
Eftir morgunmat pökkum við saman og göngum frá í skálanum áður en lagt er af stað í siglingu. Brottför frá Hlöðuvík kl. 12.