Skáli: Lambi

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Norðurland eystra

Lambi

Ferðafélag Akureyrar

Skálinn Lambi stendur í Glerárdal suðvestan Akureyrar. 16 manns geta sofið í skálanum í kojum. Forstofan er opin en innri skálinn er læstur svo alltaf þarf að panta gistingu hjá Ferðafélagi Akureyrar.

Olíukabyssa og áhöld eru í skálanum en sækja þarf vatn í læk sem er skammt sunnan skálans.

Frá vegi, skammt ofan Akureyar og að skálanum er stikuð 10-11 km löng gönguleið. Fjölbreyttar gönguleiðir eru frá skálanum um fjöll og dali á Glerárdalssvæðinu.

Skálinn var byggður 2014.

Upplýsingar

  • GPS staðsetning: N 65°34.880 - W 18°17.770
  • Símanúmer: 462 2720
  • Hæð yfir sjávarmáli: 720 m
  • Aðgengi: Gangandi
  • Skálavörður: Nei

Aðstaða í/við skála