Skáli: Laugafell

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Norðurland eystra

Laugafell

Ferðafélag Akureyrar

Í skála FFA er gistirými fyrir 20 manns, svefnpokapláss á dýnum.
Á svefnlofti yfir snyrtihúsi er gistirými fyrir 12 manns, svefnpokapláss á dýnum.
Í Þórunnarbúð er gistirými fyrir 12 manns, svefnpokapláss með dýnum.

Skálarnir eru hitaðir upp með laugavatni allt árið. Áhöld og eldunartæki eru til staðar. Gestir geta fengið aðgang að kolagrilli en þurfa að koma með kol sjálfir. Góð snyrtiaðstaða er á staðnum ásamt heitri laug.

Gott tjaldsvæði er í Laugafelli, snyrtiaðstaða og heit laug.
Laugafell er um 20 km suður af botni Eyjafjarðardals og um 15 km norðaustur frá Hofsjökli. Frá Laugafelli liggja slóðir til Eyjafjarðar, Skagafjarðar, Bárðardals og suður Sprengisand. Fólk sem hyggur á ferðir í Laugafell þarf að kynna sér vel ástand vega hjá Vegagerðinni.

Upplýsingar

  • GPS staðsetning: 65° 1.638'N, 18° 19.946'W
  • Símanúmer: GSM: 833-5697, Tetra: 641-0042
  • Hæð yfir sjávarmáli: 740 m
  • Aðgengi: Á jeppum
  • Skálavörður: Á sumrin

Aðstaða í/við skála