Fræðslurit og aðrar vörur

Fjallgönguleiðir við Glerárdal

Í þessu fræðsluriti FÍ eru greinargóðar leiðarlýsingar og kort af fallegum gönguleiðum um hæsta hluta Tröllaskaga, sem er einn mesti fjallgarður á Íslandi.

Sumar gönguleiðanna eru vel þekktar en aðrar minna en allir ættu að geta fundið gönguleiðir við sitt hæfi.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
2.000 kr.
Fjallgönguleiðir við Glerárdal
Fjallgönguleiðir við Glerárdal

Fjallgönguleiðir við Glerárdal

Eftir Harald Sigurðarson

Í þessu fræðsluriti Ferðafélags Íslands eru greinargóðar leiðarlýsingar af fallegum gönguleiðum um hæsta hluta Tröllaskaga, sem er einn mesti fjallgarður á Íslandi. Stefnt hefur verið að því að gera lýsingarnar nægilega góðar til að auðvelt sé að rata í góðu skyggni.

Sumar leiðirnar eru vel þekktar eins og á Kerlingu, Súlur og 7 tinda, en aðrar eru minna þekktar. Má þar nefna leið á Lambárdalshnjúk og Tröllafjall sem er annað hæsta fjall Tröllaskaga.

Fjöllin umhverfis Glerárdal berta merki mikilla eldsumbrota fyrir milljónum árum sem hafa mótast af ísaldarjöklum. Stórbrotið, jökulsorfið landslag með misbröttum fjöllum, jöklum í skálum og grónum dölum. Einnig skartað svæðið fjölbreyttum gróðri og fuglalífi.

Bestu fáanlegu tækni hefur verið beitt við gerð korta og GPS hnit fylgja með hverri gönguleið fyrir sig.

Kaflar í bókinni

  • Veðurfar
  • Erfiðleikagráður
  • Næring
  • Búnaður
  • Fatnaður og skóbúnaður
  • Súlur
  • Blátindur
  • Strýta
  • Tröllafjall
  • Hrossahnjúkur
  • Tröllin
  • Lambi
  • Glerárdalshnjúkur frá Lamba
  • Labárdalshnjúkur frá Lamba
  • Kerling frá Finnastöðum
  • 7 tindar, Kerling að Súlum
  • Kerling frá Lamba
  • Jökulborg