Fræðslurit og aðrar vörur

Hellismannaleið

Í þessu fræðsluriti er að finna aðgengilegar leiðarlýsingar á ýmsum gönguleiðum á Landmannaafrétti, þá sérstaklega Hellismannaleiðinni sem er þriggja til fjögurra daga gönguleið frá Leirubakka í Landmannalaugar.

Fjöldamargar aðrar gönguleiðir eru í kverinu ásamt góðum kortum.

 

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
2.500 kr.
Hellismannaleið
Hellismannaleið

Hellismannaleið - Gönguleiðir á Landmannaafrétti og í Friðlandi að Fjallabaki

Eftir Guðna Olgeirsson

Ýmsar gönguleiðir eru á Landmannaafrétti, bæði innan og utan Friðlands að Fjallabaki og er Laugavegurinn þekktust þeirra. Í þessu fræðsluriti er reynt að bæta úr skorti á aðgengilegum leiðarlýsingum og kortum á ýmsum öðrum gönguleiðum á þessu svæði.

Hryggjarstykkið í ritinu er lýsing á Hellismannaleiðinni sem er þriggja til fjögurra daga leið úr byggð í Landsveit í Rangárvallasýslu, um eyðibyggðir og áhrifasvæði Heklu, Landmannaafrétt og endar í Landmannalaugum.

Nú er hægt að ganga eftir vel merktri leið, samtals 82 km frá Leirubakka í Landmannalaugar, með Rjúpnavelli, Áfangagil, Landmannahelli og Landmannalaugar sem áningarstaði.

Einnig er lýst nokkrum gönguleiðum út frá helstu áningarstöðum á Hellismannaleiðinni, allt frá Leirubakka í Landmannalaugar, t.d. gönguleið á Heklu, Valahnúka, Löðmund og að Rauðfossi. Þá er lýst hluta af væntanlegum Dalastíg, þ.e. frá Hrauneyjum í Dalakofa  með áningu við Landmannahelli. Loks er svokölluðum Friðlandshring og Reykjadalahring lýst, en þetta eru þriggja daga hringleiðir innan friðlandsins þar sem gengið er að mestu um fáfarnar slóðir og stórbrotna náttúru.

Kaflar í bókinni

  • Hellismannaleið
    • Leirubakki-Rjúpnavellir
    • Rjúpnavellir-Áfangagil
    • Áfangagil-Landmannahellir
    • Landmannahellir-Landmannalaugar
  • Ýmsar styttri gönguleiðir í nágrenni Hellismannaleiðar
    • Frá Heklusetri að Ytri Rangá
    • Fossaleið
    • Hekla frá Dómadalsleið
    • Rauðaskál við Heklurætur
    • Valahnúkar og Valagjá
    • Löðmundur
    • Sáta við Landmannahelli
    • Rauðfoss og Rauðigígur
    • Framvatnahringur
  • Ýmsar mögulegar gönguleiðir á Landmannaafrétti
    • Dalastígur
    • Hrauneyjar-Landmannahellir
    • Landmannahellir-Dalakofi
    • Reykjadalahringur
    • Klukkugilsleið
    • Hrafntinnusker-Dalakofi
    • Friðlandshringur að fjallabaki
    • Landmannalaugar-Hrafntinnusker