Allar vörur

Árbók 2009 - Vestmannaeyjar

Í Árbók FÍ 2009 er staðháttum, náttúru, dýralífi, jarðfræði, sögu og sögnum Vestmannaeyja gerð skil.

Fjallað er um allar eyjarnar í Vestmannaeyjaklasanum en stærstur hluti bókarinnar fjallar um Heimaey. Ítarlegar er fjallað um sögu Eyjanna, Tyrkjaránið og eldgosið 1973. Þá er jarðfræði og fuglalífi gerð góð skil.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
6.900 kr.
Árbók FÍ 2009
Árbók FÍ 2009

Árbók 2009 Vestmannaeyjar

Eftir Guðjón Ármann Eyjólfsson

Í Árbók FÍ 2009 er staðháttum, náttúru, dýralífi, jarðfræði, sögu og sögnum Vestmannaeyja gerð skil. Höfundur bókarinnar, Guðjón Ármann Eyjólfsson, fjallar um allar eyjarnar í Vestmannaeyjaklasanum sem ýmist eru taldar 15 eða 18 en stærstur hluti bókarinnar fjallar um Heimaey. Ítarlegur kafli fjallar um sögu Eyjanna þar sem meðal annars er sagt frá Tyrkjaráninu 1627. Sérstakur kafli er helgaður eldgosinu í Eyjum árið 1973.

Ingvari A. Sigurðsson og Sveinn P. Jakobsson rita kafla um jarðfræði Vestmannaeyja og ríkulegu fuglalífinu eru gerð skil í sérkafla sem skrifaður er af Jóhanni Óla Hilmarssyni.

Kaflar í bókinni

  • Vestmannaeyjar; eyjar, drangar og sker
  • Jarðsaga Vestmannaeyja
  • Fuglalíf Vestmannaeyja
  • Haldið til Heimaeyjar
  • Heimaklettur
  • Siglt í kringum Heimaey
  • Ferð út í Stórhöfða
  • Herjólfsdalur
  • Gengið á Helgafell
  • Þættir úr sögu Vestmannaeyja
  • Eldgosið í Heimaey 1973
  • Elliðaey
  • Bjarnarey
  • Suðurey
  • Brandur
  • Álsey
  • Smáeyjar
  • Hellisey
  • Geldungur
  • Súlnasker
  • Gerifuglasker
  • Surtsey
  • Kvæði úr Eyjum