Allar vörur

Árbók 2011 - Í Dali vestur

Árbók FÍ 2011 fjallar um Dalabyggð norðan Laxárdalsheiðar og einkum um svæðið milli Hvammsfjarðar og Gilsfjarðar. Hluti Stranda, frá Hrútafjarðarbotni og norður í Bitru kemur einnig við sögu.

Bókin er vönduð landlýsing þar sem sögu svæðisins eru gerð góð skil. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda skemmtilegra gönguleiða.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
7.900 kr.
Árbók FÍ 2011
Árbók FÍ 2011

Árbók 2011 Í Dali vestur

Eftir Árna Björnsson

Árbók FÍ 2011 fjallar um Dalabyggð norðan Laxárdalsheiðar og einkum um svæðið milli Hvammsfjarðar og Gilsfjarðar. Hluti Stranda, frá Hrútafjarðarbotni og norður í Bitru kemur einnig við sögum.

Höfundur bókarinnar er Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur. Bókin er vönduð landlýsing þar sem sögu svæðisins eru gerð góð skil en söguríkt er það svo sannarlega. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda skemmtilegra gönguleiða. Bókin veitir því lesandanum góða leiðsögn.

Höfundur heldur hér áfram yfirferð sinni sem hófst með Árbók FÍ 1997 þegar hann skrifaði um fjalllendið milli Mýra og Dala. Nú er för heitið alla  leið austur í Bitrufjörð um eiðið sem tröllin í þjóðsögunni ætluðu að grafa sundur til að skilja Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.

Bókin er prýdd fjölda ljósmynda sem flestar voru teknar sérstaklega fyrir bókina af Daníel Bergmann. Daníel annaðist einnig umbrot á bókinni auk vinnslu ljósmynda. Bókin hefur einnig að geyma vönduð kort sem teiknuð voru af Guðmundi Ó. Ingvarssyni. Jón Viðar Sigurðsson ritstýrði verkinu.

Kaflar í bókinni

  • Undir tábergi Hvammsfjarðar
  • Hvammsveit
  • Syðriströnd
  • Nyrðriströnd
  • Saurbær
  • Staðarnöfn
  • Menn og vættir

Gönguleiðir í bókinni

  • Gaflfellsheiði
  • Sælingsdalur - Staðarhólsdalur
  • Laugar - Hvammur
  • Laugar eða Hvammur - Skarð
  • Brúnir Klofningsfjalls
  • Sælingsdalur - Fagridalur
  • Brekkudalur - Brunngilsdalur
  • Brekkudalur - Ólafsdalur
  • Krossárdalur
  • Snartartunguheiði
  • Steinadalsheiði