Allar vörur

Árbók 2014 - Skagafjörður austan Vatna I

Árbók FÍ 2014 fjallar um Skagafjörð austan Héraðsvatna, frá Hofsjökli í suðri að Furðuströndum í norðri.

Þetta er önnur af þremur árbókum FÍ sem fjalla um Skagafjörð í heild sinni. Hinar eru árbækurnar 2012 og 2016.

Í bókunum þremur sem saman telja yfir 700 blaðsíður er að finna heildstæða land- og landslagslýsingu um Skagafjörð, sögur af mannlífi, margs konar kveðskap, jarðfræðiyfirlit, byggðasögu héraðsins og margt fleira.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
8.200 kr.
Árbók 2014 - Skagafjörður austan Vatna I
Árbók 2014 - Skagafjörður austan Vatna I

Árbók 2014 Skagafjörður austan Vatna. Frá Jökli að Furðuströndum

Eftir Pál Sigurðsson

Árbók FÍ 2014 fjallar um Skagafjörð austan Héraðsvatna, frá Hofsjökli í suðri að Furðuströndum í norðri.

Höfundur bókarinnar er Páll Sigurðsson, rithöfundur og fyrrverandi lagaprófessor sem sjálfur er frá Sauðárkróki. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda frá mörgum höfundum. Daníel Bergmann annaðist umbrot bókarinnar og kortin eru teiknuð af Guðmundi Ó Ingvarssyni. Ritstjóri bókarinnar er Jón Viðar Sigurðsson.

Skagafjörður austan Vatna I er önnur af þremur árbókum FÍ sem fjalla um Skagafjörð í heild sinni. Hinar eru árbækurnar 2012 sem fjallar um Skagafjörð vestan Vatna, frá Skagatá að Jökli og árbókin 2016 sem er framhald þessarar bókar í umfjöllun um Skagafjörð austan Vatna og fjallar um svæðið frá Hjaltadal að Úlfsdölum.

Í bókunum þremur sem saman telja yfir 700 blaðsíður er að finna heildstæða land- og landslagslýsingu um Skagafjörð, sögur af mannlífi, margs konar kveðskap, jarðfræðiyfirlit, byggðasögu héraðsins og margt fleira.

Kaflar í bókinni

  • Austan Vatna
  • Fjöll og byggð á Tröllaskaga vestanverðum
  • Óbyggðir, eyðidalur og kjálkabyggð
  • Norðurárdalur og aðliggjandi fjalldalir
  • Blönduhlíð
  • Viðvíkursveit
  • Hegranes