Allar vörur

Árbók 2016 - Skagafjörður austan Vatna II

Árbók FÍ 2016 fjallar um Skagafjörð austan Héraðsvatna, frá Hjaltadal í suðri norður að Úlfsdölum. Að auki er sérstaklega fjallað um jarðfræði og landslag í Skagafirði.

Þetta er þriðja af þremur árbókum FÍ sem fjalla um Skagafjörð í heild sinni. Hinar eru árbækurnar 2012 og 2014.

Í bókunum þremur sem saman telja yfir 700 blaðsíður er að finna heildstæða land- og landslagslýsingu um Skagafjörð, sögur af mannlífi, margs konar kveðskap, jarðfræðiyfirlit, byggðasögu héraðsins og margt fleira.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
8.300 kr.
Árbók 2016 - Skagafjörður austan Vatna II
Árbók 2016 - Skagafjörður austan Vatna II

Árbók 2016 Skagafjörður austan Vatna. Frá Hjaltadal að Úlfsdölum

Eftir Pál Sigurðsson og Árna Hjartarson

Árbók FÍ 2016 fjallar um Skagafjörð austan Héraðsvatna, frá Hjaltadal í suðri að Úlfsdölum í norðri.

Höfundur bókarinnar er Páll Sigurðsson, rithöfundur og fyrrverandi lagaprófessor sem sjálfur er frá Sauðárkróki. Árni Hjartarson, jarðfræðingur fjallar í sérstökum kafla um skagfirska jarðfræði og landslag.

Bókin er prýdd fjölda ljósmynda frá mörgum höfundum. Gísli Már Gíslason annaðist umbrot bókarinnar og kortin eru teiknuð af Guðmundi Ó Ingvarssyni. Ritstjóri bókarinnar er Gísli Már Gíslason.

Skagafjörður austan Vatna II er þriðja af þremur árbókum FÍ sem fjalla um Skagafjörð í heild sinni. Hinar eru árbækurnar 2012 sem fjallar um Skagafjörð vestan Vatna, frá Skagatá að Jökli og árbókin 2014 sem er fjallar um Skagafjörð austan Vatna, um svæðið frá Jökli að Furðuströndum.

Í bókunum þremur sem saman telja yfir 700 blaðsíður er að finna heildstæða land- og landslagslýsingu um Skagafjörð, sögur af mannlífi, margs konar kveðskap, jarðfræðiyfirlit, byggðasögu héraðsins og margt fleira.

Kaflar í bókinni

  • Haldið úr hlaði
  • Dyr inn í fjallaheim Tröllaskaga
  • Hjaltadalur
  • Kolbeinsdalur
  • Út að austan
  • Höfðaströnd
  • Sléttuhlíð og Hrolleifsdalur
  • Álfahöfði og Eyjar
  • Fljót
  • Skagfirsk jarðfræði og landslag