Allar vörur

Árbók 2020 - Rauðasandshreppur hinn forni

Nítugasta og þriðja árbók Ferðafélags Íslands fjallar um Rauðasand hinn forna. Til umfjöllunar er syðsti hluti Vestfjarða: Patreksfjörður - og þar með taldar Örlygshöfn og Hænuvík - ásamt Kollsvík, Breiðuvík og Látravík. Að auki er fjallað um Látrabarg, Keflavík og Rauðasand. Inn í sérstæða náttúrufegurð svæðisins fléttast svo áhugaverð menningar- og atvinnusaga. 

Vörunúmer 252020
Verðmeð VSK
Verð
8.900 kr.
Árbók 2020 - Rauðasandshreppur hinn forni
Árbók 2020 - Rauðasandshreppur hinn forni

Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út í nítugasta og þriðja sinn. Í ár er til umfjöllunar syðsti hluti Vestfjarða: Patreksfjörður - og þar með taldar Örlygshöfn og Hænuvík - ásamt Kollsvík, Breiðuvík og Látravík. Að auki er fjallað um Látrabarg, Keflavík og Rauðasand. Inn í sérstæða náttúrufegurð svæðisins fléttast svo áhugaverð menningar- og atvinnusaga. 

Aðalhöfundar þessarar árbókar eru dr. Gísli Már Gíslason vatnalíffræðingur og Ólafur B. Thoroddsen fyrrverandi skólastjóri. Báðir eru útivistarmenn af lífi og sál og þaulkunnugir svæðinu og sögu þess. Ólafur er fæddur og uppalinn á Patreksfirði og ólast Gísli upp á Hvallátrum. Auk þeirra rita sjö "Graskellur" sérstakan kafla um gróðurfar svæðisins.

Bókin er 287 blaðsíður. Um 215 ljósmyndir og 20 uppdrættir prýða bókina auk rammagreina og yfirlitstaflna. Sem löngum fyrr teiknaði Guðmundur Ó. Ingvarsson kortin og Daníel Bergmann tók flestar ljósmyndirnar en um tugur annarra ljósmyndara kemur við sögu auk fjölmargra mynda frá gamalli tíð. Heimildaskrá ásamt örnefna- og mannanafnaskrám auka verulega notagildi verksins sem er litprentað frá upphafi til enda. 

Ritstjóri árbókarinnar er Gísli Már Gíslason (alnafni annars höfundar) og ritnefnd skipa auk hans Eiríkur Þormóðsson og Guðrún Kvaran sem bæði hafa lagt árbókum Ferðafélagsins lið í áratugi. Daníel Bergmann annaðist umbrot bókarinnar og myndvinnslu. 

Leiðréttingar og athugasemdir

Athugasemdir og leiðréttingar við árbók 2020
Kort 1, síða 42-43, Tálnki - Altarisberg
Kort 2, síða 98-99, Skapadalur - Skalladalur
Kort 3, síða 146-146, Blakkur - Kollsvík - Breiðavík
Kort 4, síða 218-219, Rauðisandur - Skor - Uppfært 10. mars 2023 
Kort 5, síða 232-233,  Rauðisandur - Saurbær - Uppfært 20. september 2021