Allar vörur

Eyjar í hraunahafi

Í þessu fræðsluriti FÍ er að finna leiðarlýsingar og fróðleik um allmargar áhugaverðar gönguleiðir á Hellisheiði sunnan þjóðvegar, meðal annars um Jósefsdal, Lambafell, Stóra-Meitil, Skálafell og Geitafell svo fátt eitt sé nefnt.

Þetta eru fáfarnar gönguslóðir nálægt höfuðborgarsvæðinu sem geyma fjöldamargt áhugavert að sjá og skoða.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
1.400 kr.
Eyjar í hraunahafi
Eyjar í hraunahafi

Eyjar í hraunahafi
Gönguleiðir milli hringvegar á Hellisheiði, Suðurstrandavegar og Bláfjalla

Eftir Sigurð Kristinsson

Í þessu fræðsluriti FÍ er fjallað um gönguleiðir á svæði frá hringvegi á Hellisheiði að Selvogi og Bláfjöllum. Þrengslavegur skiptir svæðinu í tvennt. Meðal annars eru hér gönguleiðir um Jósefsdal, Lambafell, Stóra-Meitil, Skálafell og Geitafell svo fátt eitt sé nefnt. 

Mikil hraun hafa runnið á þessu svæði og því eru fell og fjöll eins og eyjar í hraunahafinu. Á þessum slóðum er fjöldamargt áhugavert að sjá og skoða á leiðum sem eru fáfarnar en liggja þó svo nærri byggð að ekki tekur nema örskotsstund að koma sér á upphafsstað göngu. Í bókinni er meðal annars bent á hægustu leiðir á fell og um hraun og gömlum leiðum milli byggða eru gerð skil.

Höfundur ritsins, Sigurður Kristinsson, er einn af reyndustu fararstjórum Ferðafélags Íslands og er gagnkunnugur gönguleiðum á suðvesturhorninu.

Kaflar í bókinni

  • Milli hringvegar og Þrengslavegar
    • Skálafell og Hálsar
    • Lakahnúkar
    • Meitlar
    • Lakastígur - Lágaskarðsvegur
    • Lakastígur - Suðurhálsar
  • Aðrar gönguleiðir á afrétti Hjallasóknar
    • Núpafjall - Þurárhnúkur
    • Suðurferðagata eða Skógarvegur
    • Þrengslaleið
  • Vestan Þrengslavegar
    • Lambafell
    • Krossfjöll og Dimmadalshæð
    • Geitafell
    • Ólafsskarðsvegur
    • Blákollur - Sauðadalahnúkar - Ólafsskarð
    • Vegir milli hrauna og hlíða
    • Breyttar leiðir vegna nýrra hrauna
    • Breyttar gönguleiðir vegna nýrra akvega