Allar vörur

Konrad Maurer Íslandsferð 1858

Ferðasaga prófessors Konrads Maurer sem ferðaðist víða um Ísland árið 1858.

Maurer hélt dagbók allan tímann og skrifaði síðar mikla ferðasögu sem lá lengi gleymd og grafin en er nú gefin út í fyrsta sinn.

Vörunúmer
Verðmeð VSK
Verð
3.650 kr.
Konrad Maurer Íslandsferð 1858
Konrad Maurer Íslandsferð 1858

Íslandsferð 1858

Eftir Konrad Maurer

Prófessor Konrad Maurer dvaldist hálft ár á Íslandi árið 1858 og ferðaðist víða um landið. Hann hélt dagbók allan tímann og skrifaði síðar mikla ferðasögu. Sú saga lá lengi gleymd og grafin, en fannst árið 1972 þegar dr. Kurt Schier og Kládía Róbertsdóttir höfðu leitað hennar um skeið. Nú er þessi saga gefin út í fyrsta sinn. Hún er stórmerk heimild um land og þjóð, enda skrifuð af manni sem hafði yfirburðaþekkingu á sögu landsins, lögum og bókmenntum og kynntist auk þess fjölda manna úr öllum landshlutum og gat talað við þá á móðurmáli þeirra.

Konrad Maurer segir bæði kost og löst á Íslendingum, en öll frásögn hans einkennist þó af væntumþykju og virðingu fyrir þjóðinni, sögu hennar og samtíð. Ferðasagan eykur skilning okkar á eigin þjóð og sýnir okkur hve heillavænlegt getur verið að hyggja að fortíð á líðandi stund.

Ferðasaga Maurers er einkar læsileg og höfðar til ungra sem aldinna vegna þeirrar hreinskilni, hlýju og glettni sem einkennir hana. Í henni koma fram upplýsingar um menn og málefni sem hvergi hafa birst annars staðar.

Prófessor Páll Sigurðsson, fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands, skrifar formála að ferðasögunni.

Kaflar í bókinni

  • Á leið til Íslands
  • Reykjavík
  • Ferð um Suðurland
  • Norður Sprengisand
  • Frá Bárðardal að Húnaflóa
  • Um Húnaþing og Dali
  • Á ferð um Breiðafjörð
  • Frá Staðarfelli að Hítardal
  • Um Borgarfjörð