Ferð: Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir

Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir

Örgöngur í Hafnarfirði og nágrenni
Lýsing

Gengið frá bílastæði við Haukahúsið og farið að Ástjörn og Hádegisskarði milli Grísaness og Ásfjallsaxlar vestri. Malarstíg í hlíðum Ásfjalls er fylgt um stund en síðan farið niður á Ásflatir á móts við Hamranes.
Þar hefur nýjasta íbúðahverfi Hafnarfjarðar risið á undanförnum árum. Gengið er fram hjá Skarðshlíðarskóla í áttina að Hraunavöllum, sem er gamalt örnefni. Þar er Hraunvallaskóli og þaðan er haldið til baka að Ástjarnarkirkju, Ásvallalaug og Haukahúsinu. Göngutími: 1,5–2 tímar

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. 

Brottför/Mæting
kl. 20:00 frá bílastæði við Haukahúsið
Fararstjórn

Jónatan Garðarsson

Innifalið
Fararstjórn

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki