Fiskreitir í Hafnarfirði
- Lýsing
Gengið frá bílastæði bak við Bæjarbíó að Thorsplani og síðan að Einarsreit, heillegasta fiskreit bæjarins.
Þaðan er haldið í áttina að Víðistöðum og fiskreitunum við Hjallabraut. Þessu næst er farið að Háareit við Sævang og Allensreit við Hrafnistu. Þaðan liggur leiðin að Efstareit og Vörðureit við Herjólfsgötu.
Á leiðinni til baka er hugað að nokkrum malarkömbum sem voru nýttir til að breiða fisk og staldrað við hjá Bungalownum við Vesturgötu þar sem fiskur var breiddur á sínum tíma. Göngutími: 1,5–2 tímarVerið öll velkomin, þátttaka ókeypis.
- Brottför/Mæting
- kl. 20:00 frá bílastæði bak við Bæjarbíó
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
FÍ Örgöngur
- 6. maí. Fiskreitir í Hafnarfirði
- 13.maí. Setberg og Setbergshamar
- 20. maí. Mosahlíð og Öldur
- 27. maí. Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir
- 12. September. Móskarðshnúkur og Stóri Skógarhvammur




