Undirhlíðar og Stóri Skógarhvammur
- Lýsing
Gangan hefst við gömlu námuna í Undirhlíðum við Bláfjallaveginn.
Gengið er suðvestur eftir Undirhlíðarhálsi þar til komið er að fallega
mótaðri móbergsskál sem heitir Moskarðshnúkur og rétt sunnar eru
Háihnúkur. Móbergsskálin stendur uppúr Undirhlíðahryggnum og er
allsérstæð. Áfram er haldið að Melrakkaskarði þar sem farið er niður á
jafnsléttu. Leiðin liggur milli hrauns og hlíðar að Stóra-Skógarhvammi.
Þar var stunduð skógrækt af kappi frá 1959 til 1964 þegar drengir sem
dvöldu í Krýsuvík gróðursettu nokkur hundruð þúsund tré.
Þarna voru minjar um gróskumikið skógarkjarr sem var að mestu
nauðbitið og eytt þegar landið var girt árið 1959. Þetta er merkilegur
skógarreitur utan alfaraleiðar.Á bakaleiðinni er komið við lágri hæð sem heitir Stakur og síðan gengið
upp á Bungu þar sem gangan hófst.Göngutími: 3–4 klst.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.- Brottför/Mæting
- kl. 10:30 við gömlu námuna í Undirhlíðum við Bláfjallaveg
- Fararstjórn
- Innifalið
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
FÍ Örgöngur
- 6. maí. Fiskreitir í Hafnarfirði
- 13.maí. Setberg og Setbergshamar
- 20. maí. Mosahlíð og Öldur
- 27. maí. Ástjörn, Skarðshlíð og Vellir
- 19. September. Móskarðshnúkur og Stóri Skógarhvammur




