Ferð: Glæsiveisla í Flatey á Skjálfanda

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Glæsiveisla í Flatey á Skjálfanda

Lýsing

Ferð um ægifagrar slóðir þar sem náttúra, saga og mannlíf mætast á áhrifaríkan hátt. Við byrjum í Flateyjardal, þar sem byggð lagðist í eyði á síðari hluta 20 aldar. Gist er tvær nætur í skála Ferðafélags Húsavíkur að Hofi.
Eftir dvölina í Flateyjardal höldum við til Húsavíkur. Siglum til Flateyjar þar sem við gistum í húsunum Sigtúni og Sólborg. Endum daginn á glæsilegri veislu í Smiðjunni.
Daginn eftir förum við í gönguferð um Flatey með heimamönnum. Siglum til baka til Húsavíkur síðdegis og gistum seinustu nóttina á gistiheimilinu Brekku í Aðaldal, þar sem við njótum rólegrar kvöldstundar áður en haldið er heim á leið.

Brottför/Mæting
kl. 12 á einkabílum (4x4) á N1 á Grenivík
Fararstjórn

Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir

Innifalið
Gisting, sigling, hvalaskoðun og glæsileg máltíð í Smiðjunni og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbækur fjallar um svæðið og hægt að kaupa í vefverslun okkar.

   

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., föstud. Fólk hittist kl. 12 á N1 á Grenivík þar sem við sameinumst í bíla. Haldið á Flateyjardal á einkabílum. Einungis er fært fjórhjóladrifsbílum. Fólk kemur sér fyrir í skála Ferðafélags Húsavíkur að Hofi um kl.16. Við göngum síðdegis á Hofshöfða og að hinum sögufrægu Brettingsstöðum sem lögðust í eyði árið 1955 og þar með öll byggðin. Kíkt í kirkjugarðinn. Eyðibýli skoðuð. Fjöruganga. Vaðið austur yfir Dalsá og í sjósund ef aðstæður leyfa. Ganga: 5 km. Hækkun: 100 m.

2.d. Leggjum af stað kl. 9. Nausteyrarfjara gengin til vesturs og upp á Víkurhöfða meðfram Víkurvatni. Frábær sýn á Flatey. Gengið þaðan upp að eyðibýlinu Jökulsá og Vík til baka um Brettingsstaði. Sigurgeir Pétursson, skipstjóri og jarðeigandi í dalnum og í Flatey, fræðir ferðafólk um byggðina og endalok hennar. Kvöldvaka og grill. Gist á Hofi. Ganga: 10 km. Hækkun: 250 m.

3.d. Vöknum snemma, gengið frá í skála. Haldið til Húsavíkur og gengið á Húsavíkurfjall áður en haldið er út í Flatey með Gentle Giants. Skoðum hvali á leiðinni. Ganga: 7 km. Hækkun: 400 m. Kvöldverður í Smiðjunni. Brenna og sjósund áður en gengið er til náða.

4.d. Gönguferð um Flatey með heimamönnum. Skoðum kirkjuna og vitann. Komið við á strandstað Hvassafells. Siglt til Húsavíkur síðdegis. Gist á Gistiheimilinu Brekku í Aðaldal.

5.d. kl. 10. Morgunverður og pakkað saman. Samgönguminjasafnið á Ystafelli heimsótt. Kveðjustund um hádegisbil

Aðrar ferðir á Norðurland sumarið 2026

Hægt að greiða ferðir með raðgreiðslum eða netgíró.