Ferð: Úlfarsfell

Suðvesturland
Úlfarsfell
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Lýsing

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar fer af stað á ný. Gengið verður á sex fjöll þetta árið, þrjú að vori og þrjú að hausti. Verkefninu lýkur með göngu á Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
Fyrsta gangan af sex í fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar er á Úlfarsfell sem er þægileg og aðgengileg. Farið verður rólega og ætti gangan því að vera við allra hæfi. Muna eftir nesti og góðum skóm. 2-2,5 klst.


Brottför/Mæting
Kl. 17 frá bílastæðinu við Úlfarsfell Mosfellsbæjar megin.
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Ingþór Harðarson.

Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar

Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!