Úlfarsfell
- Lýsing
 Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar fer af stað á ný. Gengið verður á sex fjöll þetta árið, þrjú að vori og þrjú að hausti.
Fyrsta gangan af sex í fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar er á Úlfarsfell sem er þægilegt og aðgengilegt. Farið verður rólega og ætti gangan því að vera við allra hæfi. Muna eftir nesti og góðum skóm. 2-2,5 klst.
Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.- Brottför/Mæting
 - Kl. 17 frá bílastæðinu í Úlfarsárdal
 - Fararstjórn
 
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
 - Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
 - Peysa úr ull eða flís
 - Göngubuxur / stuttbuxur
 
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
 - Áttaviti, landakort og GPS tæki
 - Smurt nesti fyrir daginn
 - Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
 - Vatnsbrúsi
 - Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
 - Höfuðljós
 - Göngustafir
 - Myndavél og kíkir
 - Sólgleraugu / skíðagleraugu
 - Sólarvörn og varasalvi
 - Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
 - Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
 - Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
 - Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
 - Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
 - Hleðslubanki
 
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
- 20. maí. Helgafell í Hafnarfirðir
 - 1. júní. Akrafjall (Háihnjúkur) og Guðlaug
 - 27. ágúst. Tröllafoss
 - 7. september. Sporhelludalur
 - 13. september. Esjan og ísbíllinn
 
 Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta,
bara mæta!
								
								
								
								
												
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
								
															



