Eyjafjallajökull þveraður
- Lýsing
Ekið inn á Þórsmerkurleið og gengið upp vestan við Grýtutind og inn undir Skerin sem fylgt er upp á jökul, að Goðasteini, Guðnasteini og Hámundi. Gengið niður hjá Seljavöllum þar sem rútan sækir hópinn.
Í þessari ferð verður gengið á einn til tvo af hundrað hæstu tindum landsins. Sjá nánar.
- Brottför/Mæting
- Kl. 7 með rútu frá Reykjavík
- Fararstjórn
- Innifalið
- Rúta og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð á jökli
Ísland liggur við heimskautsbaug og alltaf má búast við vondum veðrum, sér í lagi þegar ferðast er á há fjöll eða jökla. Jafnframt krefjast jöklaferðir margvíslegs öryggisbúnaðar og því er dagpoki jöklaferðalangs töluvert þyngri en þegar gengið er á lægri fjöll utan jökla.
Athugið að enginn skyldi ferðast einn á jökli. Á sprungusvæðum jökla þarf að ganga í línu og lágmarkið er þrír í línu. Aðeins þeir sem hafa góða þekkingu á sprungubjörgun ættu að ferðast án fararstjóra á jökli.
Listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
- Mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís
- Peysa úr ull, flís eða mjúkskel
- Göngubuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi. Nauðsynlegt er að taka nóg af vatni þegar ferðast er lengi á jökli
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
- Hleðslubanki
Öryggisbúnaður
- Belti með karabínu
- Jöklabroddar sem búið er að stilla á gönguskóna
- Ísöxi
- Jöklalína (hjá fararstjóra)
- Sprungubjörgunarbúnaður (hjá fararstjóra)
- Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng og skófla ef ferðast er um möguleg snjóflóðasvæði
Ef fjallaskíðaferð
- Fjallaskíði og stafir
- Skíðahjálmur
- Skinn undir skíðin
- Broddar undir skíðin
Fróðleikur
Gott að vita:
- Föstudagurinn 8. maí og sunnudagurinn 10. maí til vara- takið dagana fra´.
- Jöklabúnaður nauðsynlegur;
- Ísexi, jöklabroddar og göngubelti með karabínu
- Ganga: 18 km.
- Hækkun: 1500 m.
- Göngutími: 10-11 klst.
- Lámarks aldur: 16 ára
Lokað verður fyrir skráningu í ferðina miðvikudaginn 28. apríl kl. 14.
Jöklabúnaður:
Hægt er að leigja jöklabúnað hjá Ferðafélagi Íslands fyrir þessa ferð með því að smella HÉR





