Ferð: Umhverfis Langasjó

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Umhverfis Langasjó

Sveinstindur - Fögrufjöll
Lýsing

Þriggja daga tjaldferð um magnað náttúruundur í nágrenni Vatnajökuls. Skemmtileg ganga meðal annars um Fögrufjöll sem ganga víða með þverhníptum klettahöfðum fram í Langasjó. Falleg vötn og lón og eyjan Ást í Fagrafirði. Stórbrotið landslag sem kemur fólki í snertingu við sitt innra sjálf. 

Brottför/Mæting
Kl. 9 frá rótum Sveinstinds.
Fararstjórn

Hjalti Björnsson

Innifalið
Fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir bakpokaferð

Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.

Ýmislegt

  • Bakpoki, ekki of stór
  • Svefnpoki, léttur og hlýr
  • Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
  • Tjald og tjalddýna
  • Göngustafir
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Höfuðljós
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Broddar, ef þurfa þykir
  • Peningar
  • Hleðslubanki

Snyrtivörur / sjúkravörur

  • Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
  • Verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði / þvottapoki
  • Sólvarnarkrem og varasalvi
  • Eyrnatappar

Mataráhöld / eldunartæki

  • Prímus, eldsneyti og pottur
  • Eldspýtur
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Vasahnífur / skæri

Fatnaður

  • Góðir gönguskór
  • Vaðskór / skálaskór
  • Tvö pör mjúkir göngusokkar
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Nærbuxur til skiptana
  • Nærföt, ull eða flís
  • Flís- eða ullarpeysa
  • Millilag úr ull eða flís
  • Göngubuxur
  • Stuttbuxur
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar

Matur

  • Frostþurrkaður matur
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Haframjöl
  • Smurt brauð og flatkökur
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Fróðleikur

Póstkortaútsýni við Langasjó

Langisjór er vel falin náttúruperla við rætur Vatnajökuls.
Þessi ferð er með allt á bakinu og búið er í tjöldum. Farið er hringinn í kringum vatnið sem er um rúmlega 70 metra djúpt, 20 kílómetra langt og tveir kílómetrar að breidd. Vatnið er undurfagurt, rammað inn af Tungnaárfjöllum í norðaustri og Fögrufjöllum í suðaustri. Við suðurenda vatnsins stendur Sveinstindur, frábært útsýnisfjall. Þangað munu göngumenn fara við upphaf eða lok ferðarinnar, allt eftir því hvernig viðrar.
Göngugarpurinn Jón Hartmannsson er einn þeirra sem gengið hefur með Hjalta umhverfis Langasjó. Hann er hæstánægður. „Maður fær póstkortaútsýni af Sveinstindi norður eftir tærum Langasjó með Fögrufjöll að austan og Vatnajökul að norðan. Þá sér maður Heklu frá óvenjulegu sjónarhorni. Fjöllin meðfram Langasjó eru í æpandi ósamræmi. Að vestan rísa þau upp af sandinum gróðursnauð en grænka eftir því sem ofar dregur. Að austan eru græn Fögrufjöllin, með fallegum víkum og lónum ásamt eyjunni Ást,” segir Jón.
Vatnið í Langasjó er tært en var á árum áður jökulgrátt þegar Skaftá rann í vatnið. Þegar jökullinn hopaði fann Skaftá sér annan farveg.
Ferðin í kringum Langasjó tekur þrjá daga. Í áningarstað er veitt og grillað. Hjalti fararstjóri segir fólki sögur sem tengjast svæðinu áður en fólk gengur sátt til hvílu. Við ferðarlok hefur göngufólk lagt að baki um 50 kílómetra.
 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

 
Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., laugard. Það fer eftir veðri og skyggni hvort gengið er á Sveinstind í upphafi eða við lok ferðar. Þennan dag er gengið meðfram vatninu að norðurenda þess. Ganga: 15 km.   

2.d. Gengið fyrir enda Langasjávar og að Útfallinu, afrennsli vatnsins sem fellur fram í fossi og liðast svo út í Skaftá. Þaðan er gengið í Fagrafjörð þar sem slegið verður upp tjöldum. Ganga: 17 km.

3.d. Gengið um Fögrufjöll og til baka að Sveinstindi þar sem ferðin endar. Ganga: 18 km.