Esjan og ísbíllinn
- Lýsing
Sjötta og síðasta gangan í Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar. Fjölbreytt og krefjandi ganga um litríkt og skemmtilegt umhverfi þar sem ævintýrin bíða okkar. Gangan: um 6 km. Hækkun um 500 m. Ísbíllinn tekur á móti okkur þegar niður er komið og fá allir krakkar að velja sér ís. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
Muna eftir nesti og góðum skóm. 3-4 klst.
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!
- Brottför/Mæting
- Kl. 10 á bílastæðinu við Esjuna
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
- 20. maí. Úlfarsfell
- 28. maí. Mosfell ´´í Mosfellsdal
- 7. júní. Sköflungur
- 26. ágúst. Hólmsheiði
- 6. september. Hengilssvæðið
- 12. september. Esjan og ísbíllinn
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta,
bara mæta!
Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.




