Þjófadalir
Smellið á bláa hnappinn hér uppi til hægri til að bóka skálagistingu.
Skálinn er við gönguleiðina um Kjalveg hinn forna.
AÐSTAÐA
Gengið er inn í anddyri sem hýsir eldhúsaðstöðuna og þaðan inn í lítinn svefnskála með kojum til sitt hvorrar handar. Fyrir ofan hálfan skálann er svo lítið svefnloft. Alls geta 12 manns sofið í skálanum.
Ekkert rennandi vatn er í skálanum, en hægt er að sækja vatn í lind þar nærri. Kamar stendur skammt frá.
Skálinn í Þjófadölum er lítið sæluhús reist sumarið 1939.
OPNUN OG AÐGENGI
Að sumri til er hægt að aka á jeppum langleiðina að skálanum. Ekið er um Stélbrattan frá Hveravöllum. Ganga þarf síðasta spölinn að skálanum.
Opnun skálanna yfir sumartímann helst í hendur við opnun Vegagerðarinnar á Kjalvegi og fer eftir snjóalögum og ástandi vegarins.
Hægt er að leigja skálann yfir vetrartímann með því að senda fyrirspurn á skrifstofu FÍ. Athugið að það er aðeins á færi reynslumikils ferðafólks að ferðast um þessar slóðir að vetri til og ef ætlunin er að ganga þá þarf til þess 5 árstíða útbúnað.
NÆSTA NÁGRENNI
Auk þess að vera við Kjalveg hinn forna eru fleiri gönguleiðir í nágrenninu. Þar ber helst að nefna göngu á Rauðkoll, en þaðan er gott útsýni.
Upplýsingar
- GPS staðsetning: N 64°48.900 - W 19°42.510
- Hæð yfir sjávarmáli: 610m
- Næsti skáli: Þverbrekknamúli og Hveravellir
- Aðgengi: Aðeins gangandi
- Skálavörður: Nei




