Skáli: Fimmvörðuháls / Baldvinsskáli

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Suðurland

Fimmvörðuháls / Baldvinsskáli

Smellið á bláa hnappinn hér uppi til hægri til að bóka skálagistingu.

Baldvinsskáli á Fimmvörðuhálsi er A laga sæluhús. Gengið er inn í anddyri og þaðan inn í lítinn matsal/eldhús. Á efri hæð hússins er svefnloft þar sem 16 manns geta sofið. Einfaldur kamar stendur skammt frá skálanum.  Ekkert rennandi vatn er á svæðinu, hvorki við kamarinn né inni í skálanum. Við mælum með því að fólk komi með smá vatnsbirgðir.

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er ein vinsælasta gönguleið landsins en veðrið á hálsinum er oft óútreiknanlegt og ótryggt og nauðsynlegt að hafa í einhver hús að leita á leiðinni. Fyrsta sæluhúsið var reist á þessum stað árið 1974 og var húsinu valin staðsetning miðað við reynslu gangna- og leitarmanna á því hvar mesta þörfin væri á skjólshúsi.

Upplýsingar

  • GPS staðsetning: N 63°36.665 - W 019°26.471
  • Símanúmer: 823 3399
  • Hæð yfir sjávarmáli: 900m
  • Næsti skáli: Þórsmörk
  • Aðgengi: Gangandi
  • Farsímasamband: Já
  • Skálavörður: Á sumrin

Aðstaða í/við skála

Fimmvörðuháls

Suðurland Vegalengd: 24 km Göngutími : 9 klst
Skoða