Ferð: Demantar að Fjallabaki syðra

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Demantar að Fjallabaki syðra

Lýsing

Syðra Fjallabak lumar á fjölda náttúruperla sem mörgum eru lítt kunnar. Á það sérstaklega við um Ljósárfossa efri og neðri, en ekki er auðvelt að komast að þeim efri sem skýrir af hverju þeir bíða heimsfrægðar með stóískri ró. Í þessari könnunarferð verður gengin afar fáfarin en tilkomumikil leið að Ljósárfossum, en einnig gengið að Rauðauga, Rauðárfossum og hinu nánast óþekkta Grænaauga.

Brottför/Mæting
Kl. 17 á einkabílum (jeppum) frá Olís við Rauðavatn.
Fararstjórn

Tómas Guðbjartsson og Salome Hallfreðsdóttir.

Innifalið
Gisting í Dalakofa og farastjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbækur fjallar um svæðið og hægt að kaupa í vefverslun okkar.

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., föstud.Hittumst hjá Olís við Rauðavatn kl.17 og ökum samferða að Dalakofa að Fjallabaki þar sem gist verður í 2 nætur. Um kvöldið eru 3 jeppar skildir eftir við Ljósárfossa neðri, austan Laufafells.  

2.d. Ekið er frá Dalakofa að íshellunum við Hrafntinnusker. Þar eru jeppar skildir eftir og gengið að íshellunum og þeir skoðaðir. Þá er haldið á hábungu Hrafntinnuskers og síðan í suður að ósnortnum háhitasvæðum. Gil eru þrædd niður að Ljósá og hún síðan vaðin nokkrum sinnum uns komið er að Ljósárfossum efri og risastórum grænum líparíthrygg framan við þá. Gengið er eftir litríkum giljum, austan megin Ljósár að Ljósárfossum neðri, þar bíða jepparnir og ekið í hálftíma að Dalakofa. Í lok langs göngudags er hægt að skella sér í frumstæða náttúrulaug skammt frá Dalakofa. Ganga: um 17 km. Samanlögð hækkun: 1000 m. Göngutími: um 7,5 klst.

3.d.Ekið upp að íshellunum við Hrafntinnusker og jeppar sóttir. Þaðan er haldið til baka  en nú yfir Pokahrygg. Skömmu áður er Græna augað, lítt þekktur og óslípaður demantur heimsóttur og eftir það gengið að mun þekktari Rauðufossum og Rauðauga. Ekið er heim um Dómadalsleið norðan Heklu.  Ganga: 10 km. Hækkun: 350 m. Göngutími: 3 klst.

Aðrar ferðir um Laugaveginn og Fjallabak sumarið 2026